Launað hjálparstarf - hin fullkomna vinna?
2007-06-19 22:01
Það verður að teljast nýtt fyrir mér að svekkjast að vinnudegi loknum. Það er bara svo ótrúlega skemmtilegt, fjölbreytt og gefandi starfið mitt. Þá er ég að meina tveggja vikna afleysingin sem mér bauðst uppí Alþjóðahúsi.
Ég svoleiðis elska þessa vinnu meir en orð fá lýst! Ég sit í fallegu gömlu timburhúsi við Hverfisgötuna og sinni móttöku, símsvörun, ráðgjöf, þýðingum og vefhönnun. Skrifborðið mitt er við stóran glugga út á götu. Símsvörunin er aðallega skiptiborð fyrir túlka- og þýðingaþjónustuna, Einar framkvæmdastjóra eða Margréti lögfræðing. Sem betur fer eru það aðallega ensku- eða íslenskumælandi aðilar sem hringja, en þeir sem heimsækja staðinn eru allt frá því að vera "mállausir" og uppúr.
Fyndið atvik var um daginn komu öldruð þýsk hjón sem vildu hjálp varðandi vsk-númer. Ég veit ekki nákvæmlega hvað þeim vantaði því þau töluðu einvörðungu þýsku..enga ensku, kunnu ekki á tölvulyklaborð til að nota einhverja tölvuþýðingu og það var aðeins einn starfsmaður á staðnum sem gat nokkurn veginn skilið þau, en hann er útlenskur svo hann vissi ekkert um þessi mál. Að sjálfsögðu urðu þau bara að koma morguninn eftir, sem betur fer talar lögfræðingurinn þýsku ..og hún veit allt um þessi mál.
Það er bara svo spennandi að vita ekki hvaða hjálp næsta aðila vantar. Margir spyrjast fyrir um íslenskunám, aðrir eru í húsnæðis- eða vinnuleit, suma vantar lögfræðiaðstoð vegna þess þeim langar að skilja, giftast eða kæra einhvern. Maður er einhvernveginn á launum við að googla hlutina. Leita á rsk.is, rvk.is, utl.is og öllum þessum opinberu stofnanavefjum.
Þetta er svona skemmtilegt vegna þess hvað ég er að læra mikið, hvað ég fæst við fjölbreytta hluti, hvað hæfileikar mínir nýtast ótrúlega vel, hvað það er góður mórall þarna. Spænskan hefur nýst mér, áhugi minn á innflytjendamálum svo ekki sé minnst á vefsíðugerðin öll. Ég tek yfir vefsíðuna allan júlí meðan sú sem er með hana er í fríi og er hvort sem er búin að vera að vinna helling með hana þessa síðustu daga. Ég gat ekki hamið mig rétt áðan og var farin að laga hana til núna áðan kl 21 að kvöldi til, ólaunað, bara því það er gaman. Ætli vinnualkar elski bara vinnuna sína?
[ permanent url ]
[ ]
|