[ Dagbókin | Gestabók | Ég | Forsíða | Myndir | Dagbókin | Eldri færslur ]

Mánudagar eru Bloggdagar! - 2007-06-03 17:14



Kæra Hamstralíf
2007-06-03 17:14

Þið vitið ekki hvað ég elska hamstrana mína mikið. Ég er búin að vera í mánaðarfríi frá hlutavinnunni minni á Hagstofunni og stundum hef ég fundið ég hafa of lítið að gera við tíma minn og því hef ég fylgst grannt með uppvexti og hegðun dverganna sjö og forsetahjónanna.

Samskipti hamstranna á milli eru margbrotin og hreint æðisleg að fylgjast með.. Þegar ég fyrst fékk litlu grábrúnu Dorrit og feita hvíta Ólaf virtust þau ná ágætlega saman en samt tísti Dorrit alveg stundum á hann af pirringi ..kannski því eftir smá tíma var hann alltaf að reyna að komast upp á hana, og svo var hún eðlilega meira "emotional" meðan hún var ólétt.

En það er svo fyndið, ég setti Ólaf í annað búr nokkrum dögum áður en Dorrit átti og það er eins og hún sé reið út í hann. Þau þekkja hvort annað greinilega ennþá, því viðbrögð hennar við honum eru allt önnur en við ungunum. Hún fríkar satt best að segja út ef ég leyfi þeim að "nebbast" ..tístir og tístir svo hann hrekkur allur til, svo hleypur hún eins og geðsjúklingur um búrið sitt öll í uppnámi.. ef ég reyni að taka hana í þannig ástandi tístir hún á mig af þvílíkri heift, það er eins og hún sé að fá flog..

Strákarnir eru víst mun chillaðri á svæðismálum hef ég lesið. Allavega setti ég tvo unga inn til Ólafs um daginn, óviss hvort hann myndi drepa þá sökum risavaxinnar stærðar sinnar og smæðar þeirra.. en þeir eru búnir að búa saman í sátt og krúttlífi í meira en viku. Ótrúlega Merkilegt - hann er náttúrulega pabbi þeirra og ég velti fyrir mér hvort hann geri sér grein fyrir því. Ég leyfði honum stundum að fylgjast með þeim og Dorrit gegnum rimlana - og ég veit hann gerði sér grein fyrir að Dorrit var ólétt sökum aukinnar hreiðurgerðar þeirra beggja og hvernig hann virtist reyna mikið að verja hana þegar ég reyndi að ná í hana meðan hún var ólétt. En hann er allavega algjör ljúflingur í garð barna sinna, þó í fyrstu voru þeir svo hræddir og fríkaðir út af honum að hann reyndi bara að komast burt frá þeim. Svo mikið yndi. Og hann er alveg hættur að bíta mig - ekkert smá hvað það að gerast foreldri breytir manni ;-).

Núna var ég hinsvegar að reyna í annað skiptið að setja einu gráu stelpuna inn til mömmu sinnar, í síðasta skiptið tísti Dorrit á hana þannig að sú litla skalf og stökk burt ef mamma hennar nálgaðist hana. Í þetta skiptið virðast þær rólegri gagnvart hvor annarri, allavega sitja þær klesstar saman í matardallinum sallarólegar.. elta hvor aðra um búrið og þef-samskiptin gefa til kynna að Dorrit ráði, litla leggst á bakið og er bara kjur meðan mamma hennar var að ákveða hvort hún mætti vera þarna..

Æji.. kannski hefur ekki nokkur sála áhuga á að vita um þessi mál nema ég, en þetta er bara svo magnað.. persónuleikarnir eru svo sterkir, sumir unganna eru alltaf böggandi hina, sumir eru algjörar frekjur, meðan aðrir eru ofvirkir alltaf hlaupandi og úti við.. meðan t.d. einn virðist hræddari en allt við mannfólk, kemur eiginlega aldrei út úr hreiðrinu og hleypur eins og fætur toga ef ég býð honum höndina.. já svo ekki sé minnst á hvernig litirnir umgangast hvort annað. Það fæddust 3 hvítir ungar og 4 gráir, þeir hvítu halda sér saman og náðu strax betur saman við Ólaf meðan gráu eru almennt hræddari, óframfærnari ..kannski eru þetta frekar kynin sem ég var nú bara að fullu að átta mig á núna áðan sem gera muninn svona áberandi, 2 af 3 hvítu eru stelpur og 3 af 4 gráum eru strákar..

Anyways, bara 2 vikur í að þeir flytji í dýrabúð, þ.e. nema mér takist að sannfæra Krumma um að það ER sniðugt að eiga 9 hamstra..

[ permanent url ] [ ]

<< back   |   next >>

 



User:
Pass:


Flutt á lora.skrifar.net
Jess! Það er mánudagur! ..bíddu nei..
Mikið að gera
Stjörnuspáin mín fyrir vikuna
Hýsingar
Net og Stjórn
Iðnaðarmenn, anyone?
Samband, samofið band, vefur.
Blaðagrein um mig
Heimavinna
Launað hjálparstarf - hin fullkomna vinna?
Orkubrjóstfyllir
Stressleysi
Kæra Hamstralíf
Kaffihúsasumar í vændum
Relax, Take It Easy
Ungafréttir
Þekkiru lagið?
Ökunámið upp á nýtt - þó ég féll ekki!
Klakaárás - hýslaflutningar?
Áttu Matador ?
Women's Society Approved Porn
Fræðiblogg
Skólafokkopp
back
Öðruvísi voraVerkefnatörn
lífseyðsluvölundarhúsakapphlaupið
Þak og Veggpælingar
Leigustress
Inspiration - sýningar og sjónvarp
Mín barnslegu augu..


Lora Elín Einarsdóttir - lora@klaki.net