Kaffihúsasumar í vændum
2007-06-02 18:20
Mér finnst reykingabannið það besta sem gerst hefur í Reykjavík síðan ..síðan ég
er ekki alveg viss. Síðan Pravda brann? Já, mér fannst það soldið skemmtileg
tilbreyting og setur fallegan svip á Lækjartorg, flottar brunarústir!
Annars finnst mér hreint ótrúlegt að reyklausir skuli ekki hafa hærra um hvað
þetta er æðislegt fyrir okkur, að geta farið á bari og kaffihús án þess að anda að
okkur eiturfíkn annarra. Ég dæmi engan fyrir að njóta þess að reykja góða
sígarettu, finnast þeir hafa eitthvað að gera meðan þeir sitja og drepa tímann,
eða tengjast nýju fólki gegnum sameiginlegt "áhugamál" ..en eruði að GRÍNAST hvað
þetta fallega litla hobby, þessi félagsiðja þeirra - er pirrandi fyrir þann
reyklausa sem langar að fara út á meðal fólks?
Meiri Þynnka, Fata-Fnykur, Augnsviði, Hálseymsli, - í alvöru, hefur fólk ENGA
hugmynd um það hvað maður leggur á sig, til að geta farið út að skemmta sér og
hitta vini og vandamenn ???
Væntanlega ekki, því það langar engan til að vera leiðinlegur og kvarta yfir
einhverju sem maður gat hvort eð er ekkert breytt.
En fyrir mitt leyti þá er ég allsVaKalega þakklát fyrir þessi lög. Það er mun
auðveldara fyrir reykingafólk að skreppa út í 7 mínúturnar sem tekur að reykja
sígarettuna sína en fyrir reyklausan að "anda í kringum reykinn" ...
En eins og ég segi, ég er rosalega þakklát og glöð, þetta er svo yndisleg breyting
fyrir mig því ég elska fátt meira en að sitja meðal fólks, heyrandi óminn frá
næsta borði, upplifandi vináttuhópa allt í kring, sötrandi kaffið mitt.. allavega
gefur mín hobby-koffín-fíkn góða lykt út frá sér, og það er því miður staðreynd að
þessi venjulegu reyklausu kaffihús loka öll mun fyrr en hin reykmettuðu.
Ég held að kaffihúsin eigi ekki eftir að fara á hausinn, en fyrir þau sem eru
þekkt fyrir að vera reykjarmettuð og ógeðsleg, mun það væntanlega taka smá tíma að
fá nýja viðskiptavini til sín - stybbuímyndin er enn svo "fersk" í hugum okkar
reyklausa fólksins.
Mér bara blöskrar hvað reykjandi fólk er yfirhöfuð tillitslaust og clueless um það
hvað "sjálfsögð mannréttindi" þeirra geta ekki talist til mannréttinda þar sem þau
skaða aðra og hreinlega pirra mig í tætlur!
[ permanent url ]
[ ]
|