[ Dagbókin | Gestabók | Ég | Forsíða | Myndir | Dagbókin | Eldri færslur ]

Mánudagar eru Bloggdagar! - 2007-05-04 20:53



Ökunámið upp á nýtt - þó ég féll ekki!
2007-05-04 20:53

Jæja þetta sumar mun vera undirlagt undir umferðaröryggi og mikið ökunám úr því ég fékk blessuðu vinnuna í gær. Ég er því búin að fá vinnu hjá Alþjóðahúsinu í sumar við að gera ökunámið aðgengilegra fyrir útlendinga og lesblinda. Jeij!

Ég hef varla getað hugsað um annað síðan í gær. Ég sé fyrir mér kindur fljúgandi fyrir bíla, bíla spólandi sig niður í snjóskafla og bílveltur um allt land. Þá meina ég að ég sé fyrir mér að teikna eitthvað þannig - því það er jú best að hafa þetta vel myndrænt með sem minnstum texta. Fjúh.

Skilyrðið fyrir að fá blessaða vinnuna er að fara í háskóla í haust. Því ætla ég bara að drífa mig í félagsráðgjöfina. Ég átti alveg eftir að blogga um það, en eftir spjall við ágæta stúlku sem er búin með það nám róuðust áhyggjur mínar um að verða að einhverri gribbu eftir nokkur ár í starfi, eins og hún mamma Amy í Judging Amy.

Framtíðin er því ofsalega björt frá mínum bæjardyrum séð. Fyrir utan gott veður hérna á klakanum er bara svo spennandi að fara að fá unga eftir nokkra daga (plís plís plís ekki vera étnir) ..að vera komin með yndislega sumarvinnu sem leyfir mér að sofa út, teikna, vera skapandi - og ráða að mestu leyti hlutunum sjálf, já og í gær keypti ég búr handa Ólafi Ragnari.. hann mun sóma sig vel í því, þótt lítið sé. Hann er hvort sem er svo ógeðslega latur hamstur það breytir engu fyrir hann.

En þá ætla ég að halda áfram að obsessa yfir því hvort ég eigi að nota Director eða Flash og hvernig ég eigi að koma "mikilvægt er að sýna tillitssemi og varúð í umferðinni" á myndrænt form án þess að klysjast eða drepa fólk úr leiðindum..

[ permanent url ] [ ]

<< back   |   next >>

 



User:
Pass:


Flutt á lora.skrifar.net
Jess! Það er mánudagur! ..bíddu nei..
Mikið að gera
Stjörnuspáin mín fyrir vikuna
Hýsingar
Net og Stjórn
Iðnaðarmenn, anyone?
Samband, samofið band, vefur.
Blaðagrein um mig
Heimavinna
Launað hjálparstarf - hin fullkomna vinna?
Orkubrjóstfyllir
Stressleysi
Kæra Hamstralíf
Kaffihúsasumar í vændum
Relax, Take It Easy
Ungafréttir
Þekkiru lagið?
Ökunámið upp á nýtt - þó ég féll ekki!
Klakaárás - hýslaflutningar?
Áttu Matador ?
Women's Society Approved Porn
Fræðiblogg
Skólafokkopp
back
Öðruvísi voraVerkefnatörn
lífseyðsluvölundarhúsakapphlaupið
Þak og Veggpælingar
Leigustress
Inspiration - sýningar og sjónvarp
Mín barnslegu augu..


Lora Elín Einarsdóttir - lora@klaki.net