back
2007-04-09 23:07
Nýkomin frá Akureyri og ég er svo þreytt ég blogga á morgun. <- þetta skrifaði ég í gær, núna stend ég við það.
Ég er ekki jafn hress og ég var fyrir viku, núna er ég meira týnd. Smám saman er ég að verða þreyttari á Hagstofu-vinnu minni, kósý hversdagslífið sem heillaði svo áður virkar nú líkt og búr á mig.
Ég er bara ekki alveg viss hvort eðlilegt eirðarleysið sé í stuttri heimsókna af skyldurækni eða komin til að vera þangað til ég breyti til.
Vorið er versti tíminn til að huga að nýrri vinnu. Síðasti atvinnublað sunnudagsmoggans er það versta hingað til, það var ekki ein semi-bitastæð vinna í boði. Allir stúdentar landsins flykkjast yfir vinnumarkaðinn og offramboðið sígur lífið úr annars ágætri tækifæramiðstöð draumanna.
Kannski bera páskarnir ábyrgð á þessu og næsti sunnudagur verður betri, en ég held að titringurinn í heilahveli mínu eigi rætur að rekja til Akureyrarferðarinnar. Það var gaman að hitta frænkur mínar, ömmu og skyldmenni en líka orkufrekt fjör.
Æji svo bættum við búið heldur betur með ótrúlega sætum dverghömstrum. Krummi valdi annan og ég hinn, hann valdi feitasta og ég minnsta og sætasta. Amma gaf mér líka einar 7 plöntur til að fegra híbýlið með. "Takkamma" !
En ég ekkert inspírerandi né hresst að segja frá, spyr ég heldur, félagsráðgjöf, mannfræði eða iðjuþjálfann ?
[ permanent url ]
[ ]
|