Öðruvísi voraVerkefnatörn
2007-04-02 23:47
Síðan ég kom heim af Hagstofuvakt í notalega íbúð mína uppfulla af sófum, hlýrri lýsingu og ungæðislegri tölvuleikja-strákabonding heimilismanna minna, hef ég barist fyrir því að fá að fræðast um apa-samfélög og dreka-eðlur gegnum rússa-spilun strákanna, tölvuleikjatónlistar, ball-in-a-cup æfinga og gítarspils þeirra.
Ég þurfti að ná upp orku og fá að þegja smá eftir að hafa spjallað stanslaust við rannsóknarþáttakendur í vinnunni. Það sprakk líka á dekkinu á hjólinu mínu á leið uppeftir í dag en ég lét það ekki á mig fá og gaf Krumma það bara. Ég nenni ekki að berjast við bremsuvandamál, ryð, losnun gúmmís og núna sprungið dekk, saga okkar Hjóls saman endar hér.
Einhvernveginn getur maður alveg fleytt sér gegnum útgjöldin, þrátt fyrir að vinna bara hlutavinnu og hitta vandamenn á kaffihúsum daglega. Fjarri því að vera rík upplifi ég allsnægtir þessa dagana, því ég hef núna meiri tíma og orku til að njóta þess sem lífið hefur að bjóða mér þennan nýbyrjaða apríl-mánuð 2007. En því verður ekki neitað að ég er mjög nægjusöm og versla bara í Bónus fyrir utan einstaka hnetusmjörsleit í heilsubúðir Þingholtanna. Já og smáinnkaup í hverfisbúðina okkar Kjötborg. Kannski myndu sumir ekki meika þetta..
En framundan eru spennandi tímar. Ég hef verið að sauma og laga föt, þýða erlent lesefni, hjálpa öðrum, velta fyrir mér mismunandi hjálparstarfi til að fylla tíma minn með, hugsa um að gera nýtt málverk, velta fyrir mér að bjóða jafnöldrum útí bæ eins-kvölds námskeið í flottri vefsíðugerð (bara grunninn og nokkur tricks).. hugsa um að kenna útlendingum íslensku í Alþjóðahúsinu, hanna nýja vefsíðu fyrir mig..
..en ég ætla núna að farað knúsa kærastann! Ta..
[ permanent url ]
[ ]
|