[ Dagbókin | Gestabók | Ég | Forsíða | Myndir | Dagbókin | Eldri færslur ]

Mánudagar eru Bloggdagar! - 2007-03-27 01:40



lífseyðsluvölundarhúsakapphlaupið
2007-03-27 01:40

Ok ég er með friggin afsökun! Já, ég missti úr síðasta mánudag.. og já, það er eftir miðnætti í dag.. en þetta er eiginlega ennþá mánudagur. Svo er ég með tilkynningu, og það er að ég er hætt í skólanum og hamingjan er komin aftur í líf mitt.
Já, ég er að meina það, ég er hætt ..og í dag komst ég að því að margmiðlunarskólinn er hvort sem er flokkaður hjá EuroStat, þ.e. hagstofum um alla Evrópu sem námskeið. Formlegt nám? ONEI ..þetta er Námskeið. Rétt eins og prjónanámskeið yfir helgi, rétt eins og námskeið í notkun Word, námskeið.

Þannig að ég er hætt í tveggja ára námskeiðinu mínu. Hví, spyrjið þið? Eftir allt saman.. þegar svo stutt er eftir? Því einhver sagði að maður ætti aldrei að læra iðn sem maður vill ekki vera beðinn að nýta. Thank God að ég er ekki skólplagnasérfræðingur.. eða lærður skeinari.. hvað þá menntaður þjónn? *hrollur*
Æji ég bara nennti ekki að harka enn aðra gráðuna af mér, sem er ekkert mikils metin eftir allt saman - Hagstofuflokkunin var bara staðfesting á því á vaktinni í kvöld.

Þannig að, segjum sem svo, þið séuð hætt að gapa af hneykslun og hjartað er hætt að titra af vonbrigðum - Að Lora verði eigi næsta von Margmiðlunarskólans ..og lets move on to : Hvað nú? Hvað ætlar blessað barnið þá að gera núna?

Ekki von þið spyrjið, ADSL SJÓNVARP ! ..vissuði að fyrsta mánuðinn færðu allar rásir sjónvarpsins fríar? Vissuði að Weird Animals með Nick Baker er á miðvikudögum kl 20? Vissuði að ..ok, ég kann ekki utanað hvenær þættir eru sýndir, en ég er samt mun fróðari um undursemdir heimsins heldur en fyrir viku síðan. Animal Planet, Travel channel, Discovery Travel and Living, Discovery Science, BBC, CNN, F Tv, National Geographic og síðast en ekki síst Baby Tv, hafa séð til þess.
Er ekki vinna og skóli annars til að auka á lífsgæði manns? Afsakið nægjusemi mína, en lífsgæði mín rokka og mig langar að njóta þess sem ég hef nú þegar.

[ permanent url ] [ ]

<< back   |   next >>

 



User:
Pass:


Flutt á lora.skrifar.net
Jess! Það er mánudagur! ..bíddu nei..
Mikið að gera
Stjörnuspáin mín fyrir vikuna
Hýsingar
Net og Stjórn
Iðnaðarmenn, anyone?
Samband, samofið band, vefur.
Blaðagrein um mig
Heimavinna
Launað hjálparstarf - hin fullkomna vinna?
Orkubrjóstfyllir
Stressleysi
Kæra Hamstralíf
Kaffihúsasumar í vændum
Relax, Take It Easy
Ungafréttir
Þekkiru lagið?
Ökunámið upp á nýtt - þó ég féll ekki!
Klakaárás - hýslaflutningar?
Áttu Matador ?
Women's Society Approved Porn
Fræðiblogg
Skólafokkopp
back
Öðruvísi voraVerkefnatörn
lífseyðsluvölundarhúsakapphlaupið
Þak og Veggpælingar
Leigustress
Inspiration - sýningar og sjónvarp
Mín barnslegu augu..


Lora Elín Einarsdóttir - lora@klaki.net