Þak og Veggpælingar
2007-03-12 20:32
Jæja.. ég fór að skoða tvær íbúðir áðan. Þær voru báðar alveg æðislegar á sinn hátt. Önnur, Ljósvallagatan, hafði 50's sjarma yfir sér, fallegan bakgarð og kirkjugarðinn fyrir framan sig.. Hin, Reynimelurinn, var hevý flott á nútímaskalanum, mikið opið rými, nýmálað í smekklegum litum, risagluggar, baðkar.. Ljósvallagatan var ekki með það.. en aftur á móti er Ljósvallagatan nær bænum/skólanum.
Allavega hringjum við á eftir og spyrjum fínu kennarahjónin hvort við megum leigja hjá þeim.. þau búa bara hinum megin við ganginn í húsinu svo það verður eins og að vera með mömmu og pabba vaktandi yfir manni... Annars virkar unga parið með Reynimelinn alveg ótrúlega vel á mann líka.
Annars er ekkert annað sem kemst fyrir í mínum heila þessa dagana. Ég vil bara flytja á morgun. :) So until then - TaTa.
Uppfært: Eftir að hafa installerað drivernum fyrir prentaranum, skipt um prenthylki, prentað út hýróglífur í stað íslensku og eftir Mikið umstang og stress, náði ég að prenta út þrjú eintök af húsaleigusamningum. Eftir að hafa refreshað spron-síðunni alveg nokkrum sinnum, restartað routernum og innskráð mig svona tíu sinnum náði ég að millifæra fyrirframgreiðslu á Atla Gunnarsson miklum fjárhæðum OG prenta út staðfestingar á því.. keyrt til hans og þaðan í foreldrahús Egils til að láta undirskrifa tryggingarvíxil og votta fyrir húsaleigusamningunum.. keyrt til baka og setið stjörf af þreytutransi.. Er ég LOKSINS komin með öruggt þak yfir höfuðið og veggi kringum húsgögnin mín ..tjah, og sjálfa mig ..næstu sex og hálfa mánuði.
[ permanent url ]
[ ]
|