Leigustress
2007-03-09 22:18
Ok, við erum að leita okkur að þriggja herbergja íbúð, ekki hljóðbæru viðarkoti eða með einföldu gleri.. ekki yfir 120 þúsund kallinum, ekki lengra en í hlíðarnar/holtin eða vestan við lækjargötuna..
En þar með erum við bara að fara á götuna takk fyrir. Það er í boði tímabundin gisting hjá góðu fólki og nóg er af 2ja herbergja íbúðum á svæðinu.. en það er Ekkert þarna úti. Ég er skoðandi Leigulistann, Mbl og Vísi á kortersfresti, stúdentamiðlunina og hvað eina.. en vá.. ég er að verða virkilega stressuð því við eigum að skila húsinu tómu á sunnudaginn! EFTIR TVO DAGA.
Tímabundnar lausnir sökka.. ég vil bara heimili. Strax :(
[ permanent url ]
[ ]
|