[ Dagbókin | Gestabók | Ég | Forsíða | Myndir | Dagbókin | Eldri færslur ]

Mánudagar eru Bloggdagar! - 2007-03-05 16:24



Inspiration - sýningar og sjónvarp
2007-03-05 16:24

Þetta fyrir hádegi blogg-dæmi er alveg dottið upp fyrir, ég sef svo oft yfir mig. En ég er allavega búin að standa við það það sem af er árinu að blogga á mánudögum.

Á föstudag sá ég Leg, verk Hugleiks byggt á teiknimyndum hans. Það var mjög skemmtilegt og mjög mikil sköpunargleði við völd.. fyrsta sýning sem ég hef farið á þar sem ég upplifi að möguleikar þess að hafa "live audience" eru nýttir.
Oft finnst mér leikrit byggja á aldagömlum möguleikum ..telja sig góða ef þeir hafa flotta lýsingu og smíðaðan bakgrunn.
Leg var einhversskonar samblanda af leikhúsi, sjónvarpi og tónleikum. Það gætti áhrifa frá Eurovision, Dr. Phil, The Simple Life, Silvíu Nótt og að sjálfsögðu teiknimynda Hugleiks. Mæli með þessu, mjög góð skemmtun.

Svo voru það Incubus í höllinni á laugardaginn. Hefðu verið tveir stórir skjáir hefði ég notið tónleikanna mun betur, þó þeir hafi verið góðir ..en greinilega ekki mikill metnaður lagður í þetta.. ljósashowið var flott og Incubus góðir.. en já, mér fannst Leg leggja meira í performancinn. Það er takmarkað sem "takk" frá erlendum tónlistarmanni getur heillað mann þegar maður sér ekki einu sinni hvernig hann lítur út þessi litli depill við sjóndeildarhringinn. Svo vildi Krummi ekki einu sinni fara í "Hvar er Valli" með maurana niðri við svið..

Sköpunargleði annarra og framsetning þeirra er mér mikill innblástur í annars innblásturslausu landslagi náms míns þessa dagana.. Ég er farin að tækla þetta einn dag í einu, svo ég endist fram á vor. Ef ég hugsa um ókomin verkefni annarinnar..óskiluð ómótuð og ó-inspíreruð..er erfitt að vakna á morgnana. En ef ég hefði stærra markmið, eitthvað sem ég vildi tjá og segja, líkt og textar Incubus, þjóðfélagsádeila og húmor Hugleiks og félaga.. ætli húmorinn geti ekki bjargað mér úr grámyglu námsins? Kannski lítil teiknimyndasaga um dæmigerðan tíma í eftivinnsluælu?

Hingað til hef ég notfært mér undursemdir Lost þáttanna, fyrstu seríu Dexter, smá Friends, smá Seinfeld, og mikillar orku í íbúðarleit til þess að meika að halda áfram í skólanum. Fjúff! Drama..ha... Já og btw, ég er símalaus. Getið sent mér á loraelin hjá gmail púntur com ..mrgle!

[ permanent url ] [ ]

<< back   |   next >>

 



User:
Pass:


Flutt á lora.skrifar.net
Jess! Það er mánudagur! ..bíddu nei..
Mikið að gera
Stjörnuspáin mín fyrir vikuna
Hýsingar
Net og Stjórn
Iðnaðarmenn, anyone?
Samband, samofið band, vefur.
Blaðagrein um mig
Heimavinna
Launað hjálparstarf - hin fullkomna vinna?
Orkubrjóstfyllir
Stressleysi
Kæra Hamstralíf
Kaffihúsasumar í vændum
Relax, Take It Easy
Ungafréttir
Þekkiru lagið?
Ökunámið upp á nýtt - þó ég féll ekki!
Klakaárás - hýslaflutningar?
Áttu Matador ?
Women's Society Approved Porn
Fræðiblogg
Skólafokkopp
back
Öðruvísi voraVerkefnatörn
lífseyðsluvölundarhúsakapphlaupið
Þak og Veggpælingar
Leigustress
Inspiration - sýningar og sjónvarp
Mín barnslegu augu..


Lora Elín Einarsdóttir - lora@klaki.net