[ Dagbókin | Gestabók | Ég | Forsíða | Myndir | Dagbókin | Eldri færslur ]

Mánudagar eru Bloggdagar! - 2007-02-26 21:30



Mín barnslegu augu..
2007-02-26 21:30

Sem barn fannst mér margt sem hinir fullorðnu gerðu alveg hreint út í hött. Sem barn lærði ég að hinum fullorðnu var alveg sama hvað mér fannst..

Meðal þess sem mér fannst frekar rökrænt var að maður ætti ekki að drepa litlu sætu dýrin ..hvað þá að borða lík.

Mér fannst líka fáránlegt að drekka því það drepur heilasellur, hver með réttu ráði vill skemma eigin hugsun? ..we'll get to that.

Þar sem milljónir manna svelta, hversvegna ekki bara gefa þeim að borða? Afhverju ekki kippa vandamálinu í lag? Ég bara skil þetta ekki, enn þann dag í dag, er ekkert því til fyrirstöðu!

Svo er það sem börnunum er kennt, að regnskógarnir eru lungu jarðar, og það er verið að skemma þá á ótrúlegum hraða..why? ..jú, því þeir sem skemma þetta eru svangir og eru bara að þessu fyrir okkur sem viljum deyfa skynjun okkar með nýju fallegu húsgagni?!

Kannski fyrirgefanlegt þá.. en hvað gerum við sem ekki sveltum? Jú! Við skemmum heilann meira, með eiturlyfjum því við erum svo svakalega óhamingjusöm þó við eigum ipod og gemsa, og myndavél, allt innbyggt í sömu græjuna með ótrúlega flottu hönnunina.

En þetta endar ekki hér.. því "global-warming", er alveg orðið frekar áberandi vandamál, og við gerum ekkert í því, annað en að reykja meira, því það er svo sniðugt.. því það dreifir huga okkar frá því hvað lífið er ridiculous og við erum engu betri..

Hversu langt ætli það sé í að við gerum anti-reykinga auglýsingar í þessum dúr: "Hver einasta sígaretta eyðir lofthjúpnum.. taktu strætó" ..eða eitthvað álíka rökrænt.

Já og það er alltaf full ruslatunnan hjá mér, fram að því fyrir nokkrum dögum þegar ég sá auglýsingu endurvinnslunnar fannst mér alveg ótrúlega flókið að komast að því hvar ég gæti endurunnið rafhlöður ..en Sorpa skilaði 10 milljón króna hagnaði á síðasta ári, skv. mbl.is í dag.

Afhverju þarf að pakka öllu mögulegu í svona mikið plast? Hvers vegna finnst öllum fáránlegt ef ég spyr hvort það endurvinnur mjólkurfernurnar sínar? Kaupir íslenskt? Hvort það væri svo svakalega erfitt fyrir kennarann minn að útskýra verkefnin sem hann leggur fyrir, Áður en skilafresturinn rennur út.

Ég held ég sé kominn með ágætis handrit að southpark-þætti.

Mrgl.

[ permanent url ] [ ]

<< back   |   next >>

 



User:
Pass:


Flutt á lora.skrifar.net
Jess! Það er mánudagur! ..bíddu nei..
Mikið að gera
Stjörnuspáin mín fyrir vikuna
Hýsingar
Net og Stjórn
Iðnaðarmenn, anyone?
Samband, samofið band, vefur.
Blaðagrein um mig
Heimavinna
Launað hjálparstarf - hin fullkomna vinna?
Orkubrjóstfyllir
Stressleysi
Kæra Hamstralíf
Kaffihúsasumar í vændum
Relax, Take It Easy
Ungafréttir
Þekkiru lagið?
Ökunámið upp á nýtt - þó ég féll ekki!
Klakaárás - hýslaflutningar?
Áttu Matador ?
Women's Society Approved Porn
Fræðiblogg
Skólafokkopp
back
Öðruvísi voraVerkefnatörn
lífseyðsluvölundarhúsakapphlaupið
Þak og Veggpælingar
Leigustress
Inspiration - sýningar og sjónvarp
Mín barnslegu augu..


Lora Elín Einarsdóttir - lora@klaki.net