Flutt á lora.skrifar.net
2007-08-15 14:49
Jæja, þá er ég flutt. Bæði hef ég nú eldað mína fyrstu máltíð í nýjum húsakynnum á Birkimelnum en einnig hef ég ákveðið að flytja fyrir fullt og allt á
lora.skrifar.net - vinsamlegast breyttu bookmarki, tag-i og ég veit ekki hvað fleira.
Takk pabbi, Takk bróðir, þið eruð búnir að hýsa mig vel í netheimum frá því ég byrjaði að blogga hér 2002, en eins og allra unga er von, hef ég bæði flögrað úr hreiðrinu og keypt mér eigin hýsingu og lén út í hinum stóra heimi, á frjálsum markaði (að sjálfsögðu ekki hér í fákeppninni heldur í úgglöndum).
[ permanent url ]
[ ]
|
Jess! Það er mánudagur! ..bíddu nei..
2007-08-14 18:44
Jæja, mig langaði allt í einu rosalega til að blogga, hvílík lukka því það er líka mánudagur og ég blogga á mánudögum ..en svo er bara alls ekki mánudagur heldur þriðjudagur! Held ég!
Jú.. Það er þriðjudagur. En mikið óskaplega hef ég enga tilfinningu fyrir því! Ég var búin að mæla mér mót á hádegi í dag og mætti hress í bragði ..en svo var ég bara degi of snemma! Þannig að mikið er ég ringluð í dag.. og mikið rosalega er mér HEITT ! ..erfitt að vera svona hot alltaf.. en það er gott að sólin er mætt aftur á svæðið!
Enníveis en sá yndis dagur! Ég vaknaði að venju um hádegisbil..eða reyndar kl 10, svaf svo til 11, dottaði smá lengur og var komin úr húsi á hádegi. Veit ekki, bara vaknaði svo hress eitthvað.
Núna er ég búin að skrifa langa færslu um ekki neitt. Ég er ekki einu sinni byrjuð að lýsa skemmtilegum fundi með HÍ formanni AIESEC, þar sem við m.a. ákváðum að til að hafa yfirleitt eitthvað til að bjóða nýjum meðlimum uppá, að hafa vikulega kaffihúsa-hittinga, líklegast á Kaffi Hljómalind. Held það muni vera kósý. Svo tók hann líka vel í að ég fengi að innrétta Sumarhöllina, aðsetur AIESEC í HÍ notalega. Sá ýmislegt í Tiger áðan sem ég myndi vilja nota við það..
Samt er ég eiginlega ekki byrjuð að vinna. Búin að lesa smá um template-gerð fyrir joomlu. Ég kann svo lítið í php, finnst það ekki svo spennó, en maður verður að gera flotta síðuna. Þið getið fylgst með framganginum, þar sem ég er búin að kaupa lénið okunam.com, en það er samt ennþá í klessu. Á alveg eftir að setja útlit og efni inná.
Sömuleiðis er ég búin að setja upp wordpress á lora.skrifar.net og bloggaði alveg tvær færslur þar í gær. En veit ekki hvað hlutir munu gerast hratt. Ef þú vilt fá wordpress blogg á þittnafn.skrifar.net þá held ég að það sé nóg að brosa fallega, jafnvel ekki verra að bjóða mér uppá bjór.. ;) en þökk sé fantastico hjá hostmonster.com þarf ég basicly bara að smella á 3 takka og púff, wordpress er komið upp :)
Ég er nörd. ..og mér finnst veröldin brosa við mér :)
[ permanent url ]
[ ]
|
Mikið að gera
2007-08-09 18:53
Ég man þegar ég hætti í viðskiptafræðinni því mér fannst ég hafa verið of lengi í skóla til að finnast ég samt ekki kunna að gera neitt. Þeoríur og skoðanir annarra verða þreyttar til lengdar, þannig ég ákvað að læra að gera vefsíður og nota forrit á borð við photoshop og flash.
Það er án efa ein besta ákvörðun sem ég hef tekið til þessa, kannski að skiptinemadvölinni undantekinni. En góðir hlutir eru stundum drulluerfiðir og í báðum tilfellum hætti ég. Kannski bara þegar ég sá ekki fram á að fá meira út úr hlutunum?
Hvað um það, þá er ég á leið í félagsráðgjöf í HÍ innan nokkurra vikna, en framundan er mikil vinna. Í dag setti ég saman 3 fréttir, samanlagt 6, ef tekið er mið af því að ég verð að þýða þær yfir á íslensku úr ensku, eða yfir á ensku úr íslensku, jafnvel skrifa þær frá grunni á báðum málum.
Á meðan var ég að fá sms sem ég hef ekki haft tíma né orku ennþá til að svara, hringingar og email í hrönnum, beiðni um aðstoð frá AIESEC félögum, boð um hitting hjá þeim, fleirum.. fólk að þeysast framhjá skrifborðinu.. maður sjálfur að þeysast um Alþjóðahúsið.. síminn að hringja, maður sjálfur að hringja, bíðandi eftir svari..nóg að gera.
Ég sagði afa áðan að ég væri á leið í félagsráðgjöf og hann sagði "já, svona eins og kerfisfræðingur" ..ég hélt hann hefði misheyrst eða ekki vitað hvað það væri þannig ég áréttaði "nei frekar í ætt við sálfræðistörf" ..en hann átti við að maður yrði sérfræðingur á Kerfið.. leiddi fólk gegnum það.
Á flóttamannanámskeið Rauða krossins í gær fyrir tengiliði kólumbísku flóttamannanna sem koma í september frá Ecuador, talaði einn verkefnastjórinn á þá leið að það væri akkúrat það sem félagsráðgjafar gerðu.. hjálpuðu fólki að leita styrkja sem það ætti rétt á að sækja um. Interesting.
Það er pínu einmanalegt að mæta á svona námskeið eins og ég hef verið að gera undanfarið. Skrýtið hvernig ég er farin að gera hluti í dag sem eru nær áhugasviði mínu en ég hef nokkurntíma komist, en til að gera þá, þá get ég ekki alltaf stólað á að fá aðra með mér í það.
Þetta flóttamannatengiliðsverkefni hjá RK er þannig, Hugleiðslunámskeið Sri Chinmoy í júní var þannig, fríu ghetto yoga-tímarnir við Hlemm (reyndar nokkrir komið með mér á það eða sýnt áhuga), að búa ein með 4 hamstra (þó ég elski gjörsamlega herbergið mitt)..þá er maður eitthvað svo einn! Þar sem flestar vinkvenna minna eru ekkert sérlega net-væddar virkar jafnvel bloggið mitt stundum soldið einmanalegt. Það breytist kannski þegar ég færi mig um setur á næstunni..
En þetta snýst líka allt saman um viðhorf. Allir eru einir. Það fer bara eftir því hvernig maður lítur á aðstæður hvort maður finni fyrir því eða ekki. Ég er líka afar sjaldan ein. Alltaf umkringd fólki meir og minna. Er meirað segja á leið til vinkonu minnar núna ..og að verða sein.
Núna er þungbúið úti, sumarið að líða undir lok og grenjandi rigning í allan dag. Mér er pínu kalt.. Ætli það finni ekki nokkuð margir fyrir þessari tilfinningu sem ég er að lýsa í dag. Maður er allavega aldrei einn þar sem á hverju augnabliki eru milljarðar manna að finna fyrir því sama, að mannveran ein og sér þarf að hafa fyrir því að einangrast ekki, hvort sem það er bara tilfinningalega eða í hinu ytra lífi.
[ permanent url ]
[ ]
|
Stjörnuspáin mín fyrir vikuna
2007-07-30 19:17
Just when you are getting a sense of preparing for a new future, you meet a stubborn obstacle as the week begins.
This may be in the form of a recalcitrant child, a selfish lover, a friend who seems more like an enemy – whatever... it makes you feel vulnerable and insecure. Still, nothing can take away the sense of strength and even invincibility that you are sensing more and more.
There is nothing that you cannot handle, and in a month or so you will be busily establishing yourself in new surroundings, and preparing new intellectual foundations.
Þið hafið ekki hugmynd um hvað þetta er rétt..
[ permanent url ]
[ ]
|
Hýsingar
2007-07-26 00:24
Úff hvað líf mitt er mikið í biðstöðu. Ég er núna bíðandi eftir að geta fengið mér hýsingu til að koma mér upp heimili á netinu. Það er erfitt að bíða..
Fer á netið daglega og eftir að hafa kíkt á emailið og stjörnuspánna hef ég hvergi samastað. Nema hér.. þið vitið, en það er eins og þegar heimilið er í drasli, manni langar ekkert heim!
Um leið og ég fæ hýsingu hef ég skrif á nýjan hátt.. það verður ofsalega gott. Gah.. Þá get ég líka prófað að setja upp sumarvinnu verkefnið mitt. Mikið svakalega hlakka ég til. Er komin með mest allan textann, svo núna er bara spurning um að hlaða myndum í allt og gera þetta almennilega.
Svo er það sjálf Loru-hýsingin. Er búin að fá herbergi sem ég mun koma til með að búa í meðan það virkar, sem vonandi er lengi, bara á eftir að flytja allt mitt hafurtask þangað. Bið bið bið.
[ permanent url ]
[ ]
|
Net og Stjórn
2007-07-18 22:50
Já, mér þykir það merkilegt. Það er ofar mínum skilningi hvað mér gengur einhvernveginn allt í haginn.. á þessu augnabliki sit ég í nýja herberginu mínu á Birkimelnum, nýorðin vara-formaður í stjórn Aiesec í HÍ. En það sem meira er, það eina sem ég kveið varðandi þetta blessaða yndislega herbergi, er að þar sem það er ekkert símtengi óttaðist ég að ég næði engu þráðlausu neti! ..en þar sem ég get ekki gert "bil" á þessari tölvu, ætla ég ekki að hafa þessa færslu lengri, ég bara varð að dreifa hamingjunni með umheiminum.
[ permanent url ]
[ ]
|
Iðnaðarmenn, anyone?
2007-07-17 02:39
Núna á morgun fer ég að hitta mann sem er expert á joomlu, vefumsjónakerfi ahus.is, hann ætlar að kenna mér nokkra hluti varðandi endurskipulagningu leiðakerfisins. Mér finnst þetta fáránlega skemmtilegt.. ég er sí-dúttlandi einhver logo sem eiga að bæta notenda-viðmótið enn frekar..
Svo er ég enn og aftur að flytja. Ég má nota andvirði tveggja mánaða leigu (alls 24 þús) til að lagfæra 8fm herbergið mitt, það er ekkert símtengi, aðeins ein innstunga og smá lekavandi, er einhver rafvirki/símvirki/smiður sem þú þekkir og mælir með?
[ permanent url ]
[ ]
|
Samband, samofið band, vefur.
2007-07-10 01:51
Það er áhugavert hvernig orðaval, málfar og tungumálið lýsir gildismati þjóðar. Að vera saman, hljómar vel, að vera á föstu, -er maður fastur? Að vera á lausu..skilgreinir sig út frá því að vera Ekki með neinum, að vera einhleypur að hlaupa einn, afhverju er einbúi, sá sem býr einn - afar skrýtin skepna, en sá sem er með bachelor-pad, lukkunnar pamfíll.
Bachelorette-pad er ekki til, aðeins einmana konur með ketti.
[ permanent url ]
[ ]
|
Blaðagrein um mig
2007-06-30 17:49
Já.. ef ykkur langar að skoða mynd af mér og lesa stuttlega hvað ég er að gera í sumar er ég aftan á Mogganum í dag. Ljósmyndari og blaðakona komu uppí Alþjóðahús til mín í gær. Það hafði víst verið hringt í þær uppí Alþjóðahúsi og spurt hvort þær vissu um einhvert ungmenni sem væri að gera áhugaverða hluti í sumar.
Þannig að ég þetta var fínt tækifæri til að koma á framfæri að bráðum munu þessar ökunámsglósur standa fólki til boða. Reyndi líka að vekja athygli á ahus.is , AFS, Aisec, mikilvægi þessa verkefnis.. og allt það er í góðu, nema ég er bara geggjað feimin. Að vera einhvernveginn fyrir allra augum, og samt ekki fyrir allra augum, ..ekki eins og ég taki mikið eftir þeim greinum og ljósmyndum sem ég skoða í blöðunum. En allavega hef ég svona nokkurnveginn á hreinu hverjir lesa þessa síðu (held ég).. en þetta er allt öðruvísi!
Já, vanmáttug, lítil og valdlaus. Ég hef enga stjórn á því hvernig fólk les þessa grein, hvað fólki mun finnast, engar útskýringar til að leiðrétta misskilninga.. fnah? Kannski ætti maður ekki að hugsa svona mikið, en það hefur aldrei neinn skrifað grein um mig áður. Eða með mig í brennidepli, þó greinin hafi bara verið um verkefnið, sem var ekki einu sinni mín hugmynd. Er hégómafullt að vekja athygli á grein um sig? Er réttara að láta sem hún sé ekki til? Er ég snar-geðveik? Allavega upptekin af sjálfri mér, það er á hreinu.
[ permanent url ]
[ ]
|
Heimavinna
2007-06-26 02:06
Æji hvað það er skemmtilegt að vera á fullu í verkefnum. Það er alveg merkilegt hvað það að hafa næga tíma til verkanna gerir fyrir sálarlífið. Bæði er metnaðurinn meiri og svo er stressið miklu minna.
Vinur minn frá Ecuador var að bjóða mér vinnu.. það er svo krúttlegt að hann er bjóðandi manni alveg lúsarlaun, í stað þess að biðja um hlutina sem greiða. Æji, það sem er núna nýjast hjá honum er að láta mig þýða flókinn spænskan texta yfir á ensku. Þökk sé freetranslation.com eru lúsarlaunin sem hann býður næstum þess virði, en æji samt ekki..
Í dag gerði ég svo slatta í blessaða ökunámsverkefninu. Byrjaði daginn á því að senda framvinduskýrslu á nýsköpunarsjóðinn og kláraði svo að glósa og einfalda allan fyrsta kaflann í ökunámsbókinni. Frekar nett.. og ég var heldur ekkert svo lengi að því.
Anyways, vefsíðugerð, þýðingar, heimavinna ..þetta á ofsalega vel við mig. Heimavinna hefur öðlast jákvæðari merkingu.
[ permanent url ]
[ ]
|
Launað hjálparstarf - hin fullkomna vinna?
2007-06-19 22:01
Það verður að teljast nýtt fyrir mér að svekkjast að vinnudegi loknum. Það er bara svo ótrúlega skemmtilegt, fjölbreytt og gefandi starfið mitt. Þá er ég að meina tveggja vikna afleysingin sem mér bauðst uppí Alþjóðahúsi.
Ég svoleiðis elska þessa vinnu meir en orð fá lýst! Ég sit í fallegu gömlu timburhúsi við Hverfisgötuna og sinni móttöku, símsvörun, ráðgjöf, þýðingum og vefhönnun. Skrifborðið mitt er við stóran glugga út á götu. Símsvörunin er aðallega skiptiborð fyrir túlka- og þýðingaþjónustuna, Einar framkvæmdastjóra eða Margréti lögfræðing. Sem betur fer eru það aðallega ensku- eða íslenskumælandi aðilar sem hringja, en þeir sem heimsækja staðinn eru allt frá því að vera "mállausir" og uppúr.
Fyndið atvik var um daginn komu öldruð þýsk hjón sem vildu hjálp varðandi vsk-númer. Ég veit ekki nákvæmlega hvað þeim vantaði því þau töluðu einvörðungu þýsku..enga ensku, kunnu ekki á tölvulyklaborð til að nota einhverja tölvuþýðingu og það var aðeins einn starfsmaður á staðnum sem gat nokkurn veginn skilið þau, en hann er útlenskur svo hann vissi ekkert um þessi mál. Að sjálfsögðu urðu þau bara að koma morguninn eftir, sem betur fer talar lögfræðingurinn þýsku ..og hún veit allt um þessi mál.
Það er bara svo spennandi að vita ekki hvaða hjálp næsta aðila vantar. Margir spyrjast fyrir um íslenskunám, aðrir eru í húsnæðis- eða vinnuleit, suma vantar lögfræðiaðstoð vegna þess þeim langar að skilja, giftast eða kæra einhvern. Maður er einhvernveginn á launum við að googla hlutina. Leita á rsk.is, rvk.is, utl.is og öllum þessum opinberu stofnanavefjum.
Þetta er svona skemmtilegt vegna þess hvað ég er að læra mikið, hvað ég fæst við fjölbreytta hluti, hvað hæfileikar mínir nýtast ótrúlega vel, hvað það er góður mórall þarna. Spænskan hefur nýst mér, áhugi minn á innflytjendamálum svo ekki sé minnst á vefsíðugerðin öll. Ég tek yfir vefsíðuna allan júlí meðan sú sem er með hana er í fríi og er hvort sem er búin að vera að vinna helling með hana þessa síðustu daga. Ég gat ekki hamið mig rétt áðan og var farin að laga hana til núna áðan kl 21 að kvöldi til, ólaunað, bara því það er gaman. Ætli vinnualkar elski bara vinnuna sína?
[ permanent url ]
[ ]
|
Orkubrjóstfyllir
2007-06-19 00:04
Ég var í vorkvölds göngutúr um gróin tún og gangstíga. Fuglar spjölluðu saman um Guð má vita hvað meðan Bílar þustu framhjá á leið sinni að gera það sem fólk gerir.
Væri ekki æðislegt ef það væri leitast við að lýsa Reykjavík með hjálp ljósameistara einhvers leikhúss, þegar grámyglan væri að drepa okkur ..að sama skapi og sólin sjálf birtir upp á líf okkar þegar skýjin forða henni ekki frá því?
Annars er sumarvinnan mín yndisleg, það er svo gott fólk að vinna með mér að ég fyllist von og eldhug því það er tekið vel í hugmyndir mínar, ég fæ jákvætt viðmót ef ég sýni frumkvæði og ég finn hvernig ég gæti vaxið þarna í starfi.
[ permanent url ]
[ ]
|
Stressleysi
2007-06-12 01:51
Kirkjugarðurinn á móti húsinu mínu vex í hjarta mér með hverjum degi sem yndislegri og fallegri griðarstaður en ég hefði getað hugsað mér.
Staðurinn er eiginn heimur, þar sem tími virðist ekki vera til, líkin hvíla, gestir koma, og á hverju ári spretta lauf á trjánum og visna á ný þegar haustar.
En það er eitthvað við þennan stað sem kallar á mig, lokkandi ilmur blómanna á trjánum, ótamið frelsi dýranna sem þar búa, dularfullar ferðir mannanna.
Hversvegna iðaði garðurinn af þöglu mannlífi milli trjánna klukkan 3 á laugardagsnóttu? Ef þið haldið fyllerí þá skjátlast ykkur, því fólkið sem var á ferli var fullorðið í tvöfaldri merkingu þess orðs.
Það var kvöl og pína að eyða kvöldinu í kvöld innan veggja Hagstofukassans. Ég áttaði mig á því í kvöld að þessi vinna stressar mig upp. Ekki eru það samtölin við ókunnuga sem stressa mig, heldur kúgandi þrýstingurinn sem smígur milli vitanna þrátt fyrir að harða mótbaráttu, af því að friða tölfræðiguðinn, sem er ekkert nema peningaguð. Því fleiri svör, því hraðari viðtöl, þeim mun minni tenging við fólkið, því betra.
En það eru ekkert allir á þessum nótum, ég reyni að eiga róleg og virðingarfull samtöl, en það skapar innri spennu ..því fólkið sem borgar mér laun, þó það segi kannski sumir það séu akkúrat viðtalendurnir, vill meiri hraða, magn, heildarsummu.
En síðasta vaktin mín um tíma verður á miðvikudaginn og er það vel. Ég er orðin svo vön því að taka góðan tíma í allt sem ég gerði í maí að ég bara meika ekki þetta stress. Fuss.. hver veit, nema ég endi bara á því að flytja í sveitina og eigni mér bekki í miðjum smábæjarsamfélögum landsins ..sitji og stari út á stærstu fjölagröf manna, brjótandi sker og mótandi landið.
[ permanent url ]
[ ]
|
Kæra Hamstralíf
2007-06-03 17:14
Þið vitið ekki hvað ég elska hamstrana mína mikið. Ég er búin að vera í mánaðarfríi frá hlutavinnunni minni á Hagstofunni og stundum hef ég fundið ég hafa of lítið að gera við tíma minn og því hef ég fylgst grannt með uppvexti og hegðun dverganna sjö og forsetahjónanna.
Samskipti hamstranna á milli eru margbrotin og hreint æðisleg að fylgjast með.. Þegar ég fyrst fékk litlu grábrúnu Dorrit og feita hvíta Ólaf virtust þau ná ágætlega saman en samt tísti Dorrit alveg stundum á hann af pirringi ..kannski því eftir smá tíma var hann alltaf að reyna að komast upp á hana, og svo var hún eðlilega meira "emotional" meðan hún var ólétt.
En það er svo fyndið, ég setti Ólaf í annað búr nokkrum dögum áður en Dorrit átti og það er eins og hún sé reið út í hann. Þau þekkja hvort annað greinilega ennþá, því viðbrögð hennar við honum eru allt önnur en við ungunum. Hún fríkar satt best að segja út ef ég leyfi þeim að "nebbast" ..tístir og tístir svo hann hrekkur allur til, svo hleypur hún eins og geðsjúklingur um búrið sitt öll í uppnámi.. ef ég reyni að taka hana í þannig ástandi tístir hún á mig af þvílíkri heift, það er eins og hún sé að fá flog..
Strákarnir eru víst mun chillaðri á svæðismálum hef ég lesið. Allavega setti ég tvo unga inn til Ólafs um daginn, óviss hvort hann myndi drepa þá sökum risavaxinnar stærðar sinnar og smæðar þeirra.. en þeir eru búnir að búa saman í sátt og krúttlífi í meira en viku. Ótrúlega Merkilegt - hann er náttúrulega pabbi þeirra og ég velti fyrir mér hvort hann geri sér grein fyrir því. Ég leyfði honum stundum að fylgjast með þeim og Dorrit gegnum rimlana - og ég veit hann gerði sér grein fyrir að Dorrit var ólétt sökum aukinnar hreiðurgerðar þeirra beggja og hvernig hann virtist reyna mikið að verja hana þegar ég reyndi að ná í hana meðan hún var ólétt. En hann er allavega algjör ljúflingur í garð barna sinna, þó í fyrstu voru þeir svo hræddir og fríkaðir út af honum að hann reyndi bara að komast burt frá þeim. Svo mikið yndi. Og hann er alveg hættur að bíta mig - ekkert smá hvað það að gerast foreldri breytir manni ;-).
Núna var ég hinsvegar að reyna í annað skiptið að setja einu gráu stelpuna inn til mömmu sinnar, í síðasta skiptið tísti Dorrit á hana þannig að sú litla skalf og stökk burt ef mamma hennar nálgaðist hana. Í þetta skiptið virðast þær rólegri gagnvart hvor annarri, allavega sitja þær klesstar saman í matardallinum sallarólegar.. elta hvor aðra um búrið og þef-samskiptin gefa til kynna að Dorrit ráði, litla leggst á bakið og er bara kjur meðan mamma hennar var að ákveða hvort hún mætti vera þarna..
Æji.. kannski hefur ekki nokkur sála áhuga á að vita um þessi mál nema ég, en þetta er bara svo magnað.. persónuleikarnir eru svo sterkir, sumir unganna eru alltaf böggandi hina, sumir eru algjörar frekjur, meðan aðrir eru ofvirkir alltaf hlaupandi og úti við.. meðan t.d. einn virðist hræddari en allt við mannfólk, kemur eiginlega aldrei út úr hreiðrinu og hleypur eins og fætur toga ef ég býð honum höndina.. já svo ekki sé minnst á hvernig litirnir umgangast hvort annað. Það fæddust 3 hvítir ungar og 4 gráir, þeir hvítu halda sér saman og náðu strax betur saman við Ólaf meðan gráu eru almennt hræddari, óframfærnari ..kannski eru þetta frekar kynin sem ég var nú bara að fullu að átta mig á núna áðan sem gera muninn svona áberandi, 2 af 3 hvítu eru stelpur og 3 af 4 gráum eru strákar..
Anyways, bara 2 vikur í að þeir flytji í dýrabúð, þ.e. nema mér takist að sannfæra Krumma um að það ER sniðugt að eiga 9 hamstra..
[ permanent url ]
[ ]
|
Kaffihúsasumar í vændum
2007-06-02 18:20
Mér finnst reykingabannið það besta sem gerst hefur í Reykjavík síðan ..síðan ég
er ekki alveg viss. Síðan Pravda brann? Já, mér fannst það soldið skemmtileg
tilbreyting og setur fallegan svip á Lækjartorg, flottar brunarústir!
Annars finnst mér hreint ótrúlegt að reyklausir skuli ekki hafa hærra um hvað
þetta er æðislegt fyrir okkur, að geta farið á bari og kaffihús án þess að anda að
okkur eiturfíkn annarra. Ég dæmi engan fyrir að njóta þess að reykja góða
sígarettu, finnast þeir hafa eitthvað að gera meðan þeir sitja og drepa tímann,
eða tengjast nýju fólki gegnum sameiginlegt "áhugamál" ..en eruði að GRÍNAST hvað
þetta fallega litla hobby, þessi félagsiðja þeirra - er pirrandi fyrir þann
reyklausa sem langar að fara út á meðal fólks?
Meiri Þynnka, Fata-Fnykur, Augnsviði, Hálseymsli, - í alvöru, hefur fólk ENGA
hugmynd um það hvað maður leggur á sig, til að geta farið út að skemmta sér og
hitta vini og vandamenn ???
Væntanlega ekki, því það langar engan til að vera leiðinlegur og kvarta yfir
einhverju sem maður gat hvort eð er ekkert breytt.
En fyrir mitt leyti þá er ég allsVaKalega þakklát fyrir þessi lög. Það er mun
auðveldara fyrir reykingafólk að skreppa út í 7 mínúturnar sem tekur að reykja
sígarettuna sína en fyrir reyklausan að "anda í kringum reykinn" ...
En eins og ég segi, ég er rosalega þakklát og glöð, þetta er svo yndisleg breyting
fyrir mig því ég elska fátt meira en að sitja meðal fólks, heyrandi óminn frá
næsta borði, upplifandi vináttuhópa allt í kring, sötrandi kaffið mitt.. allavega
gefur mín hobby-koffín-fíkn góða lykt út frá sér, og það er því miður staðreynd að
þessi venjulegu reyklausu kaffihús loka öll mun fyrr en hin reykmettuðu.
Ég held að kaffihúsin eigi ekki eftir að fara á hausinn, en fyrir þau sem eru
þekkt fyrir að vera reykjarmettuð og ógeðsleg, mun það væntanlega taka smá tíma að
fá nýja viðskiptavini til sín - stybbuímyndin er enn svo "fersk" í hugum okkar
reyklausa fólksins.
Mér bara blöskrar hvað reykjandi fólk er yfirhöfuð tillitslaust og clueless um það
hvað "sjálfsögð mannréttindi" þeirra geta ekki talist til mannréttinda þar sem þau
skaða aðra og hreinlega pirra mig í tætlur!
[ permanent url ]
[ ]
|
Relax, Take It Easy
2007-05-27 13:29
Vitiði stundum leiðis mér geðveikt að heita Lora. Það er enginn annar á Íslandi sem heitir Lora. Ef einhver slúðrar um mig, ef ég stíg feilspor, þá er engin önnur sem kæmi til greina að sagan snerist um. Sosum ekkert komið uppá, bara að pæla í þessu í morgun, og fattaði ég tala aldrei um þetta. Held það sé mun auðveldara að heita bara Anna eða Óli. Annars er ég ástfangin af copycat-tónlist Mika, því hann er að herma eftir Scissor Sisters í sumum lögunum allavega. En hann skilur væntanlega hvernig mér líður þegar ég er kölluð Laura, Lára eða spurð Lora? Ha? LOORA? Bíddu hvaðan ertu? *grrr*
"He chose the name Mika for his professional name because he was frustrated with how often people would mispronounce his name." - Wikipedia
Ég fór á hugleiðslunámskeið sri chinmoy í skúlagötunni á fimmtudag. Það var gott að fá smá leiðbeiningu í hugleiðslu, þó það sem stóð uppúr var einfaldlega aðhaldið að einhver sagði sittu, lokaðu augunum, komdu kyrrð á hugann og við innöndun hugsaðu jákvæða eiginleika sem þú vilt og við útöndun neikvæða eiginleika sem þú vilt vera án.
Ég elska að hugleiða.. maður fyllist allri orkunni sem maður kvartar yfir að hafa ekki dags daglega.
[ permanent url ]
[ ]
|
|
|

|